Skip to main content

Styrkja starfið með frjálsum framlögum

Sem styrktaraðili að Krýsuvík leggur þú mikilvægu meðferðastarfi lið og leggur þitt að mörkum til að bæta aðstöðu, gæði og eftirfylgni í fíknimeðferð fyrir langt leiddan og viðkvæman hóp.

Biðlisti Krýsuvíkur er langur en undanfarin ár hefur þó tekist að auka fjölda plássa í meðferðinni úr 21 í 26 og stefnum við á að bæta við 3 plássum til viðbótar á þessu ári til að fleiri fái tækifæri til betra lífs.

Hægt er að styrkja starfið Krýsuvík með frjálsum framlögum og/eða með því að gerast félagsmaður og borga árlegt gjald upp á 5000 kr – SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG SEM FÉLAGSMANN

Á dagskrá er að stækka meðferðarheimilið og vonandi geta sinnt fleiri einstaklingum í einu og eru framkvæmdir þegar hafnar

Hægt er að styrkja starfið með frjálsum framlögum með millifærslu:

Krýsuvíkur Samtökin
Kt: 610486-1699
Banki: Félagareikningur: 0537-14-007055

Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn. Hann er okkur mjög mikilvægur og gerir starfið í Krýsuvík raunhæft.

Um Krýsuvík

Krýsuvík er meðferðastofnun fyrir fólk með alvarlega fíknisjúkdóma. Þar er boðið upp á langtíma áfallamiðaða 12 spora meðferð og er markmið Krýsuvíkur að gera skjólstæðingum kleift að vaxa og þroskast sem persónur og fá tækifæri til að komast aftur inn í samfélagið sem virkir þjóðfélagsþegnar.

Biðlisti Krýsuvíkur er langur en undanfarin ár hefur þó tekist að auka fjölda plássa í meðferðinni úr 21 í 26 og stefnum við á að bæta við 3 plássum til viðbótar á þessu ári til að fleiri fái tækifæri til betra lífs.