Skip to main content

Skrifstofa

Skrifstofa Krýsvíkursamtakanna:

Austurgötu 8, 220 Hafnarfirði

Skrifstofan er opin:

Þriðjudaga frá: 10:00-12:00 og Fimmtudaga frá: 10:00-12:00

Krýsuvíkursamtökin

Krýsuvíkursamtökin voru stofnuð 24.apríl 1986, og eru samtök einstaklinga og fyrirtækja sem hafa það að markmiði, að starfrækja Meðferðarheimilið í Krýsuvík, til hjálpar þeim einstaklingum, sem ánetjast hafa vímuefnum og af þeim ástæðum misst stjórn á lífi sínu.

Megináherslan er hjálp til sjálfshjálpar fyrir vímuefnaneytendur, sem ekki hafa náð árangri á hefðbundnum meðferðarstofnunum. Krýsuvíkursamtökin eru meðlimur í European Federation of Therapeutic Communities.

Viltu gerast félagi í Krýsuvíkursamtökunum

Að gerast félagi í Krýsuvíkursamtökunum er í sjálfu sér lítið mál, en mikilvægt. Það er fyrir tilstuðlan félaga og fyrirtækja í samtökunum að Krýsuvík gengur, stór og smá framlög hafa í gegnum árin gert það að verkum að Meðferðarheimilið í Krýsuvík er enn til staðar fyrir fólk með fíknivanda. SMELLTU HÉR TIL AÐ GERAST FÉLAGSMAÐUR