Skip to main content

1 milljón í styrk frá Svölunum.

Eftir febrúar 20, 2026Fréttir

Svölurnar, góðgerðarfélag flugfreyja og flugþjóna, komu í heimsókn til okkar í Krýsuvík og færðu meðferðinni rausnarlegan styrk upp á eina milljón króna. Styrkurinn mun nýtast afar vel í starfsemi heimilisins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu og þjónustu við skjólstæðinga. Við erum Svölunum innilega þakklát fyrir hlýhuginn og dýrmætt framlag til samfélagsins.