
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og eiginkona hans Hólmfríður Björnsdóttir munu taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Jóhann Berg hleypur hálft maraþon og Hólmfríður 10 km.
Með þátttökunni vilja þau vekja athygli á mikilvægu starfi samtakanna og safna fé svo fleiri einstaklingar fái tækifæri til meðferðar og nýs upphafs.
Jóhann Berg segir tengsl sín við málefnið persónuleg:
„Ég ætla að hlaupa hálfmaraþon til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Ég hef kynnst
mikilvægu starfi samtakanna í gegnum pabba minn, Guðmund, sem hefur starfað fyrir
þau undanfarin ár. Í Krýsuvík fá einstaklingar sem glíma við fíkn og oft erfiða áfallasögu langtímameðferð og stuðning til að byggja líf sitt upp á nýtt. Því miður komast færri að en vilja vegna takmarkaðra fjármuna og biðlistar eru langir. Ég vil með hlaupinu vekja athygli á þessu mikilvæga starfi og safna fé svo fleiri fái tækifæri til meðferðar og nýs upphafs. Hlaup hafa verið stór hluti af lífi mínu sem atvinnumaður í fótbolta, en hálfmaraþon er ný áskorun fyrir mig. Ég stefni á góðan tíma, en enn frekar á að safna góðri upphæð fyrir Krýsuvíkursamtökin.“
Í Krýsuvík er einstaklingum sem glíma við fíkn og oft flókna áfallasögu boðið upp á
langtímameðferð og stuðning til að byggja líf sitt upp á nýtt. Sökum takmarkaðra
fjármuna komast færri að en vilja og bíða margir lengi eftir plássi.
Krýsuvíkursamtökin þakka Jóhanni Berg og fjölskyldu hans kærlega fyrir stuðninginn og hvetja alla til að leggja málefninu lið, hvort sem er með áheitum á hlaupara, þátttöku í hlaupinu sjálfu eða með því að deila sögunni áfram.
HEITA Á JÓA HÉR; Hlaupastyrkur – Jóhann Berg