Skip to main content

Afmælisrit Krýsuvíkur

Eftir apríl 29, 2026Fréttir

Nú á þessu tímamótum fagnar Krýsuvík 40 ára starfi, og af því tilefni höfum við gefið út afmælisrit sem varpar ljósi á ferðalagið, fólkið og þróunina sem hefur mótað starfsemina í gegnum árin.

Ritið er bæði afturhvarf og sýn fram á við. Þar má finna sögu stofnunarinnar og þeirra sem lögðu grunninn að starfinu, en líka innsýn í það sem hefur verið að þróast á síðustu árum; faglegri meðferð, aukna áherslu á áfallavinnu, nýja kvennaálmu og dýpri skilning á því hvað raunverulegur bati krefst.

Viðtöl við lykilfólk í starfinu gefa lifandi mynd af daglegu starfi í Krýsuvík, frá meðferðarteyminu og ráðgjöfum til þeirra sem skapa rammann í kringum meðferðina. Þar má líka lesa um samstarf við alþjóðlega aðila eins og High Watch, sem hefur haft mikil áhrif á þróun meðferðarinnar.

Kannski það sem snertir mest eru þó batasögurnar sjálfar. Frásagnir þeirra sem hafa gengið í gegnum meðferðina, staðið frammi fyrir sjálfum sér og fundið leið til baka. Þær minna okkur á að bati er ekki einföld lína heldur ferli, stundum brotakennt, en alltaf mögulegt.

Afmælisritið er okkar leið til að staldra við, horfa yfir farinn veg og þakka fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt í gegnum árin. En líka til að deila því með fleirum hvað felst í starfinu og hvers vegna það skiptir máli.

Ritinu verður dreift í prentuðu formi á helstu stofnanir

Smellið til að lesa rafrænu útgáfuna: afmælisrit

 

Sérstakar þakkir fá:  Dagný B.Gísladóttir ritstjóri ritsins, Aþena Elíasdóttur grafískur hönnuður, Helgi Magnússon prófarkalesari, kærar þakkir til allra þeirra sem skrifuðu í ritið og til viðmælenda,  til þeirra ljósmyndara sem leyfðu birtingu á myndefni, til Ölgerðarinnar og til allra annarra styrktaraðila verkefnisins (sjá á lokasíðum ritsins)

Hér má einnig sjá nokkrar opnur úr ritinu: