Skip to main content

Afmæli Krýsuvíkur í Hafnarborg

Eftir apríl 29, 2026Fréttir

Á fimmtudaginn síðastliðinn, á sumardaginn fyrsta, fögnuðum við 40 ára afmæli okkar með hátíðlegum viðburði í Hafnarborg þar sem litið var yfir farinn veg, horft til framtíðar og þakkað fyrir það traust sem starfinu hefur verið sýnt í gegnum árin.

Viðburðurinn var vel sóttur og ríkti hlý og einlæg stemning. Björg Fenger stýrði dagskránni og opnaði viðburðinn með orðum um mikilvægi starfsins og þann mannlega kraft sem býr að baki.

Í ávörpum dagsins var bæði litið til fortíðar og framtíðar. Lárus Welding stjórnarformaður Krýsuvíkur fór yfir sögu samtakanna, minntist föðurs síns heitins Snorra Welding sem var einn af stofnendum Krýsuvíkur og minnti á þá elju og fórnfýsi þeirra sem hafa lagt grunninn að starfinu. Elías Guðmundsson forstöðumaður Krýsuvíkur fjallaði um þróun meðferðarinnar og þær breytingar sem hafa átt sér stað á síðustu árum, með aukinni áherslu á fagmennsku, áfallameðferð og heildræna nálgun.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar lagði áherslu á mikilvægi starfseminnar fyrir samfélagið og lýsti yfir áframhaldandi vilja til samstarfs við Krýsuvík. Anna Hildur Guðmundsdóttir kom inn á stöðu meðferðarmála á Íslandi og mikilvægi samvinnu milli aðila í kerfinu. Í ræðu sinni tilkynnti hún einnig um sex mánaða tilraunaverkefni í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið sem tryggir skjólstæðingum Krýsuvíkur og Hlaðgerðarkots flýti innlögn inn á Vog. Um er að ræða tímamótasamning í íslensku meðferðarkerfi sem miðar að því að tryggja að veikasta fólkið í kerfinu komist í afeitrun, sem er forsenda þess að geta hafið meðferð í Krýsuvík. Þetta markar mikilvægt skref í átt að heildstæðari þjónustu og betri samfellu í bataferlinu.

Eitt af eftirminnilegustu augnablikum dagsins var þegar sýnd var stikla úr heimildarþætti um Krýsuvík eftir Þorstein J en hún var  sýnd í heild sinni á RÚV það sama kvöld. Tolli færði einnig Krýsuvík stórt málverk í afmælisgjöf en verkið stendur sem tákn um ferðalag hetjunnar og þeirri umbreytingu, styrk og von sem starfsemin byggir á. Tónlist skipaði einnig mikilvægan sess í dagskránni með Krumma og Pétri Ben.

Við þökkum öllum sem fögnuðu með okkur, og öllum þeim sem hafa verið hluti af þessari vegferð.

Ljósmyndir: Hallur Karlsson