Lárus Welding, stjórnarformaður Krýsuvíkur, safnaði hæstu upphæðinni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, alls rúmlega þremur milljónum króna fyrir Krýsuvík. Elli framkvæmdastjóri Krýsuvíkur skoraði á Lárus að hlaupa á undir tveimur og safna 3 milljónum og það tókst.
Elías Guðmundsson framkvæmdastjóri samtakanna hljóp einnig hálfmaraþon og samtals safnaði hann, starfsfólk hans og stjórn yfir fimm milljónum króna fyrir Krýsuvík.
Brot úr grein á mbl.is
„Við erum að gera þetta núna því við erum að hefja söfnun. Þetta er byrjunin, við þurfum meira svona 30-40 milljónir. Við þurfum að fjölga plássunum í skólanum, úr 21 í 28. Við þurfum stærri samning við ríkið til að geta ráðið ráðgjafa og vöktun,“ segir Lárus.
„Við hvetjum heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin til að koma til okkar með stærri samning. Ég mun hringja í þá á mánudagsmorgun,“ segir Lárus. Enn er hægt að heita á Lárus og styrkja Krýsuvíkursamtökin á vef Reykjavíkurmaraþonsins.
Nýlegar athugasemdir