Skip to main content
Monthly Archives

janúar 2026

EDRÚVIKA 5-12. febrúar 2026

Eftir Fréttir

Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. Febrúar 2026 og við vonum að sem flestir taki þátt með því að gefa og dreifa henni sem víðast.
Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“.

Í Edrú vikunni verða landsmenn hvattir til að sleppa áfengi og gefa í staðinn andvirðið til Krýsuvíkur.

Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð í Krýsuvík,
flestir þeirra ungt fólk í miklum vanda. Það er nauðsynlegt að stytta þessa biðlista, nokkuð sem krefst
aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis getum við tekið á
móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega og bjarga mannslífum.

Krýsuvík hefur starfað í yfir 40 ár. Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að eflingu starfsins með
betur menntuðum ráðgjöfum og samstarfi við fremstu meðferðarstöðvar í Bandaríkjunum. Árangurinn
er skýr: um 70% þeirra sem ljúka sex mánaða meðferð eru edrú tveimur árum síðar og snúa aftur
út í samfélagið, til náms eða starfa.

Þátttaka er einföld og boðið verður upp á tvo möguleika:

Hringja í 9027107 þar sem 4.500 kr er dregin af símareikningi

eða greiða í gegnum www.edruvika.is þar sem þrír möguleikar eru í boði;
andvirði rauðvínsflösku kr. 3.500,
andvirði 12 bjóra kr. 4.500
og
andvirði sterks víns kr. 7.500.

Starfsfólk heimsækir Highwatch fyrir IFS námskeið

Eftir Fréttir

Sex starfsmenn frá Krýsuvík fóru núna í janúar í heimsókn á meðferðarstöðina Highwatch í Bandaríkjunum, þar sem þau sóttu IFS Level 1 námskeið (Internal Family Systems).

IFS er gangreynd og vaxandi meðferðarnálgun sem byggir á þeirri hugmynd að innra líf okkar samanstandi af ólíkum „pörtum“  tilfinningum og viðbrögðum. Partarnir hafa allir sitt hlutverk og tilgang. Í stað þess að bæla niður eða berjast við erfiða parta er með IFS unnið með þá af forvitni og virðingu. Markmiðið er að styrkja tengsl við sjálfið (e. Self), sem er rólegur og skýr kjarni hvers einstaklings.

Nálgunin hentar mjög vel í áfalla- og fíknimeðferð þar sem hún styður einstaklinga í að skilja eigin innri ferla, auka sjálfsvitund og byggja upp öryggi og sjálfstraust. Þekkingin sem starfsmenn Krýsuvíkur fengu á þessu námskeiði mun nýtast bæði í klínísku starfi og í daglegum samskiptum innan Krýsuvíkur.

Krýsuvík leggur ríka áherslu á símenntun og faglega þróun starfsfólks, með það að markmiði að veita skjólstæðingum sem heildstæðasta og áhrifaríkasta stuðning sem völ er á.