FUNDARBOÐ
Aðalfundir og fulltrúaráðsfundir Krýsuvíkursamtakanna, kt. 610486-1699, og
Meðferðarheimilisins Krýsuvík, kt. 560991-1189, verða haldnir sameiginlega klukkan
17:00 þann 21. maí 2026 í fundarsalnum Sveinatungu í Ráðhúsi Garðabæjar,
Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.
Á dagskrá fundanna verða eftirfarandi mál:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Sameiginleg skýrsla stjórna um starfsemi félaganna árið 2025 lögð fram
3. Ársreikningar félaganna fyrir árið 2025 lagðir fram til samþykktar
4. Kosningar fulltrúaráðsmanna í fulltrúaráð og kosning formanns fulltrúaráðs
5. Kjör aðalmanna og varamanna í stjórn og kjör stjórnarformanns
6. Kosningar endurskoðenda
7. Önnur mál
Tillögur frá félagsmönnum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur
stjórnanna eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Dagskrá og ársreikningar
félaganna munu liggja frammi á skrifstofu félaganna félagsmönnum til sýnis fimm
dögum fyrir aðalfund. Samhliða aðalfundi er haldinn fulltrúaráðsfundur og því verður
ein sameiginleg fundargerð útbúin fyrir fundina.
Fundarboð þetta er sent skráðum félagsmönnum í Krýsuvíkursamtökunum og
Meðferðarheimilinu Krýsuvík ásamt því að vera birt opinberlega á heimasíðu
félaganna og í einu víðlesnu dagblaði með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Félagsmenn geta nálgast fundargögn rafrænt viku fyrir aðalfund, með því að senda
fyrirspurn á elli@krysuvik.is. Fundargögnin verða einnig afhent á aðalfundinum.
Hafnarfjörður, 7. maí 2026,
Stjórn Krýsuvíkursamtakanna og Meðferðarheimilisins Krýsuvík.





















































Nýlegar athugasemdir